5 flokkur karla

Tindastóll

30.12.2011 18:47:45 / ingviomarsson

Æfingar hefjast mán.9.jan

Sælir drengir. Æfingar hefjast að nýju eftir áramót mánudaginn 9.janúar. Mánudagur: 15.25-16.05 Allir - (íþróttahús) - Mæting 15.15 inn í klefa. Miðvikudagur: 16.15-17.00 Eldra ár - (Gervigras) - Mæta með legghlífar! 17.00-17.45 Yngra ár - (Gervigras) - Mæta með legghlífar! Fimmtudagur: 13.55-14.40 Eldra ár - (Íþróttahús) - Mæting 13.50 inn í klefa. 14.40-15.25 Yngra ár - (Íþróttahús) - Mæting 14.30 inn í klefa. Kv. Ingvi Hrannar, þjálfari. 660-4684

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2011 16:03:26 / ingviomarsson

Frí á æfingu í dag, miðvikudag.

Sælir drengir... Það er frost á vellinum. Æfing á morgun inni, á venjulegum tíma.

Kv.Ingvi Hrannar

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2011 11:01:19 / ingviomarsson

Frí á æfingu í dag, miðvikudaginn 7.des vegna veikinda.

Sælir drengir.

Ég er veikur og því fellur æfingin í dag niður. Þið getið mætt sjálfir og leikið ykkur en ég get ekki verið með ykkur.

Sjáumst vonandi á morgun, fimmtudag.

Kv. Ingvi Hrannar

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2011 15:20:53 / ingviomarsson

Engin æfing í dag, miðvikudaginn 30.nóv

Sælir drengir.

Ég kíkti á gervigrasvöllinn áðan og er hann þakinn snjó. Það verður því engin æfing í dag. Við tökum bara aukaæfingu þegar völlurinn verður orðinn auður.

Sjáumst á morgun, fimmtudag.

Kv. Ingvi Hrannar
660-4684

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2011 16:25:20 / ingviomarsson

Týndar buxur

Sælir drengir.

Eftir æfingu í íþróttahúsinu í dag voru buxur úr klefanum okkar horfnar.

Ef þið hafið óvart sett svartar (eins og Carhart) buxur í töskuna ykkar eftir æfingu eða að hún hafi dottið ofan í, viljið þið þá láta mig vita strax í síma 660-4684.

Kv. Ingvi Hrannar

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2011 13:12:35 / ingviomarsson

Breyting á æfingatíma á miðv. og frí hjá yngra ári

Sælir drengir.

Æfingatíminn á miðvikudögum er örlítið breyttur og verða æfingar á miðvikudögum nú 15 mín. fyrr en áður.

Miðvikudagar:
Eldra ár: 16.15-17.00
Yngra ár - 17.00 - 17.45

Á morgun, miðvikudag, fellur æfingin hjá yngra árinu niður vegna bekkjarkvölds.

Þeir sem ekki eru að fara á það bekkjarkvöld af yngra árinu (t.d. Ari) eru beðnir um að mæta þá með eldra árinu í staðinn kl. 16.15 ef þeir eiga kost á þvi.

Kv. Ingvi Hrannar, þjálfari
660-4684

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2011 11:40:11 / ingviomarsson

Pizzuveisla á miðvikudaginn 9.nóv

Sælir drengir.
Pizzuveisla á Hard-Wok fyrir okkur á miðvikudaginn klukkan 19.00. 

Fyrst er æfing:
Eldri 16.30-17.15
Yngri: 17.15-18.00
Svo hittumst við á Hard-Wok klukkan 19.00

Kostar kr. 750.- með drykkjum.

Sjáumst á morgun, mánudag, í íþróttahúsinu.

Kv. Ingvi Hrannar, þjálfari660-4684ingviomarsson@gmail.com

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2011 16:34:52 / ingviomarsson

Æfingatímar

Mánudagur:
15.25-16.05 Allir - (íþróttahús) - Mæting 15.10

Miðvikudagur:
16.30-17.15 Eldra ár - (Gervigras) - Mæting 16.25 - tilbúnir út á völl og með legghlífar
17.15-18.00 Yngra ár - (Gervigras) - Mæting 17.10 - tilbúnir út á völl og með legghlífar

Fimmtudagur:
13.55-14.40 Eldra ár - (Íþróttahús) - Mæting 13.50
14.40-15.25 Yngra ár - (Íþróttahús) - Mæting 14.30

Athugið að miðvikudagstímarnir geta breyst þegar líða fer á veturinn og það fer að dimma enn meira... ég tilkynni það nánar síðar ef af því verður.

Kv. Ingvi Hrannar, þjálfari
660-4684

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2011 22:01:33 / ingviomarsson

Æfing á gervigrasinu á morgun og vetrarfríið

Sælir drengir.
Æfingin á morgun verður á gervigrasinu.
16.30-17.15 Eldra ár - (Gervigras) - Mæting 16.25
17.15-18.00 Yngra ár - (Gervigras) - Mæting 17.10

Það er ennþá óvíst hvort ég komist á æfinguna þar sem ég er að fara til Austurríkis á leik FK Austria Wien og SK Rapid Wien, en ef ég kem ekki verður annar þjálfari sem leysir mig af.

Það verður frí á fimmtudags-og mánudagsæfingunni í vetrarfríinu. Ef þið verðið í bænum þá hvet ég ykkur til þess að hittast og fara í fótbolta.

Síðan hefjast æfingar á fullu á miðvikudag eftir vetrarfrí.

Æfingataflan okkar breyttist aðeins og verða æfingar í vetur eftirfarandi:

Mánudagur:
15.25-16.05 Allir - (íþróttahús) - Mæting 15.05

Miðvikudagur:
16.30-17.15 Eldra ár - (Gervigras) - Mæting 16.25
17.15-18.00 Yngra ár - (Gervigras) - Mæting 17.10

Fimmtudagur:
13.55-14.40 Eldra ár - (Íþróttahús) - Mæting 13.45
14.40-15.25 Yngra ár - (Íþróttahús) - Mæting 14.30

Ef veðrið er leiðinlegt þá klæðum við okkur vel því ég ætla ekki að fá ykkur í veikindi eða meiðsli því þið eruð illa búnir.Mætum tímanlega, með allan útbúnað og tilbúnir á æfingu. 

Kv. Ingvi Hrannar, þjálfari

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2011 23:12:16 / ingviomarsson

Nýr þjálfari og nýr æfingatími

Sælir drengir. Nú eru æfingar að fara að byrja hjá okkur aftur eftir frí. Fyrsta æfing byrjar TÍMANLEGA á mánudaginn í íþróttahúsinu. Mæting: 15.00 í íþróttahúsið. Smá fundur fyrst og svo upphitun uppi á svölum fyrir æfingu. Mánudagur: 15.25-16.05 (Íþróttahús) Miðvikudagur: 16.00-17.00 (Gervigras) Fimmtudagur: 13.55-14.35 (Íþróttahús) Það verður síðan stærri fundur hjá okkur fljótlega og líka fundur fyrir foreldra. Látið alla strákana vita af þessu og mætum klárir í nýtt tímabil. Kv. Ingvi Hrannar ingviomarsson@gmail.com 660-4684

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2011 16:44:55 / 5flkk

Æfingar út mánuðinn

Hérna sjáið þið æfingaplan út mánuðinn:

Þriðjudagur 20. sept. kl. 16.00 á nöfum
Fimmtudagur 22. sept. æfing fellur niður vegna námskeiðs hjá þjálfara
Mánudagur 26. sept. æfing kl. 16.00 á nöfum
Fimmtudagur 29. sept. UPPSKERUHÁTÍÐ (nánar auglýst síðar).

Svo hefjast vetraræfingar samkvæmt vetrar TÍM og það verður auglýst síðar.

Kv. Gaui

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.09.2011 22:02:07 / 5flkk

Jæja þá hefjast æfingar að nýju.

Á Þriðjudaginn verður fyrsta æfingin í langan tíma. Við byrjum kl. 17.00 á nöfunum og leikum okkur í klukkustund. Ég sinni æfingum fram að mánaðarmótum fyrir 5. flokk þessa sumars. Ég reikna með að fljótlega eftir mánaðarmót verði aldursskipting þar sem eldra árið fer upp í 4. flokk og yngra árið verður að eldra ári í flokknum. Þá hefst vetrarstarfið og væntanlega hefjast inniæfingar undir stjórn nýs þjálfara þá líka.

Kv. Gaui


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.08.2011 23:05:18 / 5flkk

Takk fyrir síðastliðið ár.

Nú kemur pása í æfingarnar hjá okkur til 13. september. Þá æfum við í 3 vikur saman áður en það kemur aftur pása í 2-3 vikur. Eftir það skiptast hóparnir. Æfingarnar verða kl. 17.00 þriðjudaga og fimmtudaga þessar vikur. :d

En að lokum vill ég þakka ykkur fyrir frábært ár þar sem áhugi og metnaður hefur verið til fyrirmyndar. Foreldrum vill ég þakka sérstaklega fyrir frábært samstarf allt árið og frábært króksmót frá ykkar hálfu. Ég trúi því að samstaða í foreldrahópi skili sér beint til strákanna.

:)Kv. Gaui


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.08.2011 18:04:35 / 5flkk

KA, keila og pizza

Við förum kl. 15.00 frá íþróttahúsinu, mætum norðan megin. (hjá æfingasvæðinu) Liðin verða skipuð eftirfarandi leikmönnum.

A
Rúnar
Nonni
Halldór
Pálmar
Jónas
Reynir Hofsós
Sigurður Þór
Guðni

B
Hólmar
Mikael
Konni
Óðinn
Pétur
Jóhann
Alexander Bj
Ingi

C
Róbert
Hjörtur
Matti
Kristinn
Úlfar
Jón Arnar
Hrannar
Gunnar Bl.
Atli Dagur

Það kostar 2000 í bensín og 1000 kall í keilu og pizzu. Við ætlum að mæta og gera okkar besta í leiknum svo skemmtum við okkur í keilu saman á eftir.

Eins og staðan er núna þá hafa eftirfarandi strákar far:

Ingi með far
Róbert með far
Hjörtur með far
Jónas með far
Reynir með far
Halldór með far
Gunnar Bl. með far

Rúnar með far + 4
Óðinn með far + 2
Jóhann með far + 2
Alexander með far + 3

Nonna vantar far
Matta vantar far
Pétri vantar far
Hólmari vantar far
Pálmari vantar far
Konna vantar far
Kristni vantar far
Guðna vantar far
Úlfari vantar far
Atla vantar far
Jóni Arnari vantar far
Hrannari vantar far
Sigurði Þór vantar far
Mikael vantar far
Gaua vantar far

Eftir stendur að þegar búið er að fylla sætin sem bjóðast umfram þá vantar fjórum sinstaklingum enn far.

Kv. Gaui

» 17 hafa sagt sína skoðun

14.08.2011 21:56:24 / 5flkk

Vikan framundan..

Á morgun mánudag verður frí. Á þriðjudaginn verður æfing kl. 15.00 á æfingasvæðinu. Á miðvikudaginn verða síðustu leikir sumarsins á Akureyri. A og C liðin spila kl. 17.00 og B liðið spilar kl. 17.50. Eftir leikina er planið að gera eitthvað saman á Akureyri, ég lét það í hendur nokkurra foreldra að finn út úr því. Það verður tilkynnt hér þegar við vitum meira. En þá aftur að aðalatriðinu leikjunum. HVERJIR KOMAST OG ÆTLA AÐ FARA??? HVAÐA FORELDRAR GETA KEYRT??? LAGT VERÐUR AF STAÐ KL. 15.00  Við þurfum sæti fyrir allavega 25 rassa kannski fleiri.

Skrá sig hér.

Kv. Gaui


» 22 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 21752
Könnun
Hverjir verða Heimsmeistarar